Einfaldur, raunhæfur og kerfisbundinn árangur.
Ef þú ert byrjandi í ræktinni, búinn að vera að mæta en veist ekki hvað þú átt að vera að gera. Þá ertu á réttum stað.
Ég hjálpa byrjendum að ná mælanlegum árangri í hverri viku í gegnum fjarþjálfun, ekkert flókið prógramm, ekkert rugl, bara árangur.
Um þjálfarann
Ég heiti Hugi Snær Jónsson og er ÍAK menntaður einkaþjálfari. Ég hef verið að æfa reglulega í 5 ár. Þegar ég byrjaði að æfa var ég tæplega 65 kg en núna er ég orðinn rúmlega 15 kílóum þyngri og töluvert þéttari.
Margir sem leita til mín hafa verið að mæta í ræktina mánuðum saman án þess að sjá raunverulegar breytingar. Skipta stöðugt um prógrömm, æfa án skýrrar stefnu og eru ekkert að bæta sig.
Ég hef sjálfur farið í gegnum þetta, og það er ekkert flókið að laga þetta. Það þarf bara skýrt skipulag, vel valdar æfingar og dugnað. Aðalmarkmiðið er alltaf að gera betur heldur en á seinustu æfingu.
Þjálfunarpakkar
Plan A
Fjarþjálfun með mikilli eftirfylgni
✅ Sérsniðið æfingaprógramm
✅ Matarplan
✅ Aðgangur að appi til að skrá bæði æfingar og matarplan
✅ Vikuleg checkin þar sem við förum yfir stöðuna
✅ Dagleg eftirfylgni
✅ Stuðningur í skilaboðum
12.900 kr. á mánuði
Plan B
Einkaþjálfun í sal
✅ Fjórir 45 mínútna einkatímar í mánuði
✅ Tækniþjálfun í öllum æfingum
✅ Leiðréttingar á æfingum
✅ Sérsniðið æfingaprógramm
✅ Matarplan
✅ Aðgangur að appi til að skrá bæði æfingar og matarplan
✅ Vikuleg checkin þar sem við förum yfir stöðuna
✅ Dagleg eftirfylgni
✅ Stuðningur í skilaboðum
Ath. einungis í boði í Worldclass á Selfossi.
39.000 kr. á mánuði
Plan C
✅ 60 mín. einkatími í sal
✅ Tækniþjálfun í öllum æfingum
✅ Sérsniðið æfingaprógramm
✅ Matarplan
✅ Aðgangur að appi til að skrá bæði æfingar og matarplan
✅ Vikuleg checkin þar sem við förum yfir stöðuna
✅ Dagleg eftirfylgni
✅ Stuðningur í skilaboðum
30% afsláttur á fyrsta mánuði “Plan A” ef þú ákveður að halda áfram í fjarþjálfun
Stakur einkatími í sal + 4 vikur í fjarþjálfun
19.500 kr. einu sinni
Algengar spurningar
-
Þessi fjarþjálfun er fyrir alla þá sem að hafa samviskusamlega verið að mæta í ræktina en eru samt ekki að bæta sig. Skiptir ekki máli þótt þú sért alger byrjandi eða aðeins lengra komin/n. Ef þú ert með þetta vandamál þá er fjarþjálfun fyrir þig.
-
Nei, en það er algert lágmark að geta komist 3-4 sinnum í viku. Það er enginn svo upptekinn að hann nái ekki að hreyfa sig í 4 tíma á viku.
-
Ef þú ætlar að koma í einkaþjálfun já. En ef þú ætlar að koma í fjarþjálfun, er ekkert mál að hanna prógramm í kringum heimaæfingar. Ég mæli hins vegar eindregið með því að fjárfesta í ræktarkorti.
-
Þú færð sendan greiðsluseðil inn á heimabankann.
Hafðu samband
Ef þú ert með einhverjar spurningar eða sérstakar fyrirspurnir getur þú sent mér skilaboð hérna. Ég mun svara eins fljótt og auðið er.